Hæ,
Ég ligg hérna og hef það ágætt...með rúmlega 10 cm skurð á mallanum...
Ég
fór í aðgerð síðasta mánudag og tja alveg ótrúlegt hvað þetta gekk
hratt...undirbúinn, svæfður, skorinn, vakinn og keyrt heim á innan við
4 tímum...það kalla ég nú gott.
Heima hjá Addý og Helga fékk ég
alveg afbragðs þjónustu. Ég hér með þakka ykkur þúsundfalt...næst þegar
ég þarf í uppskurð þá mæti ég til ykkar :) :) :)
Ég kom svo heim
í gærkvöldi og satt að segja þá er þetta dæmi bara ansi vont...þökk sé
verkjatöflum þá er þetta þolanlegra og satt að segja þá er ég skárri
með hverjum tíma sem líður. Ég mun þó ekki gefa kost á mér í komandi
landsleiki.
Síðustu daga hef ég séð ansi mikið flöktefni á sjónvarpsskjánum...í dag til dæmis sá ég prýðismynd með Danny Aiello sem heitir Dinner Rush.
Svo hef ég lesið eina skemmtilega bók sem heitir Hjarta Voltaires. Mæli með henni...ég ætla svo að lesa eitthvað meira í kvöld...kannski maður haldi áfram með bók Marinu Lewycka Tveir Húsvagnar amk byrjar bókin vel. Marina Lewycka skrifaði söguna "Stutt ággrip af sögu traktorsins á Úkraínsku"
Og sú bók er alveg frábær. Ég las hana reyndar á ensku svo ég get ekki
tjáð mig um íslensku þýðinguna, en venjulega eru nú bækur í íslenskri
þýðingu ágætlega gerðar.
Í kvöld er svo fótbolti og kvalirnar linast og linast og ég finn að ég er klár í flest fljótlega.
Þakka þeim sem lásu.
kveðja,
Arnar Thor
miðvikudagur, nóvember 05, 2008
Subscribe to:
Post Comments (Atom)

2 comments:
Þú hefðir átt að koma í aðgerðina hér heima, þá hefðiru laggst inn á deildina mína!!!!!
Láttu þér batna,
kv. Rúnabrúna
Anytime, anytime.
Börnin eru nú þegar farin að sakna þín.
Sendu inn athugasemd