Hjarta Voltaires eftir Luis López Nieves
Nú sendir Mál og menning frá sér Hjarta Voltaires eftir Luis López Nievez, einn helsta höfund Púertó Ríkó.
Hjarta Voltaires
er þjóðargersemi í Frakklandi; það eina áþreifanlega sem eftir er af
einum fremsta hugsuði síðari alda. En dag nokkurn kvikna efasemdir um
að hjartað sem varðveitt er í skríni í París sé það rétta. Á æðstu
stöðum er ákveðið að málið skuli rannsakað til hlítar og leit hefst að
ættingjum heimspekingsins til að bera saman erfðaefni. En reynist
hjartað ekki vera úr Voltaire, á þá að leyna sannleikanum? Og hvar væri
hjarta hans þá niðurkomið?
Hjarta Voltaires er
viðburðarík og gamansöm spennusaga sem vitnar ekki aðeins um þörf
nútímans fyrir staðreyndir og sannanir heldur skyggnist einnig inn í
hugarheim lærðra manna á 18. öld. Getum við sett okkur í spor
Voltaires? Vísindamaðurinn Roland de Luziers fær það ögrandi verkefni
að komast til botns í margslunginni ráðgátunni sem ef til vill væri
betur komin óleyst.
Luis López Nieves (f. 1950) er eins og áður
segir einn helsti höfundur Púertó Ríkó og þekktur fyrir smásögur auk
þessarar vinsælu skáldsögu. Hann hefur tvisvar hlotið Bókmenntaverðlaun
Púertó Ríkó, í fyrra skiptið fyrir smásögur sínar og síðara skiptið,
árið 2006, fyrir Hjarta Voltaires.
Kristín Guðrún Jónsdóttir þýddi úr spænsku.
Úr ritdómum um bókina:
„Frumleg skáldsaga, góð í gegn.“
Críticas Magazine, New York
„Höfundur gerir sér mat úr sögulegum staðreyndum og umvefur þær skáldskap til að framreiða ljúffenga skáldsögu.“
El Sentinel, Flórída
„Spenna sem stigmagnast í margslunginni og grípandi bók sem kemur á óvart… gæti náð sömu vinsældum og Nafn rósarinnar.“
Seymour Menton, Háskólanum í Kaliforníu
„Búið ykkur undir óvenjulegan lestur.“
El Tiempo, Kólumbíu
„Áhugaverð og spennandi… Nieves nær
manni strax og sleppir ekki fyrr en sagan er öll. Hjarta Voltaires
svínvirkar fyrir þá sem hafa gaman af sögulegum skáldsögum og svo bara
alla hina sem hafa gaman af lestri góðra skáldsagna.“
Þórarin Þórarinsson / Nýtt Líf